NesNet er ungt fyrirtæki en eigi að síður hlaðið mikilli reynslu. Fólkið að baki fyrirtækinu hefur mikla reynslu af veiðarfæragerð, veiðum, viðskiptum, menntun og fjölmiðlun. NesNet var stofnað til að safna þeirri reynslu undir eina regnhlíf.
Fram til þessa hefur starfið að mestu lotið að kennslu og þjálfun fyrir fiskveiðar. Einkum hefur verið haldið uppi námsskeiðum fyrir Frakka og Hollendinga þar sem þeir eru þjálfaðir í að beita dragnót í stað hefðbundinna veiðiaðferða.
NesNet ehf vinnur náið með Fjölbrautaskóla Suðurnesja og dótturfélagi hans, hinum alþjóðlega veiðarfæraskóla ISCFT. Á vegum skólans er m.a. rekinn sérhannaður tankur vegna tilrauna með veiðarfæri.
NesNet ehf hefur haldið fjölmörg námsskeið fyrir evrópska sjómenn er læra vilja að beita dragnót til veiða. Hvert námsskeið er sniðið að þörfum hvers og eins hóps og felur m.a. í sér sjóferð á dragnóatrbát.
Viðtökur hafa verið einstaklega jákvæðar og þátttakendur hafa verið ósparir á að hæla námskeiðahaldinu fyrir öðrum starfsfélögum.
Alþjóðlega dragnótaráðstefnan var haldin á vegum NesNets í samstarfi við FS í maí 2008. Var hún sérlega vel heppnuð og er þegar hafin undirbúningur annarrar ráðstefnu.
Sérfræðingar á vegum NesNets hafa haldið námsskeið í veiðarfæragerð fyrir sjómenn í S-Afríku og Namibíu.
NesNet, ISCFT og FS starfrækja í sameiningu tilraunatank þar sem gerðar eru tilraunir með smækkuð hlutföll af veiðarfærum og einstökum hlutum er þeim tengjast. Þannig er hafa t.d. fyrirtæki frá Íslandi, Noregi og Spáni nýtt sér aðstöðuna fyrir alls kyns tilraunir með veiðarfæri og íhluti. Eitt helsta fyrirtækið í framleiðslu veiðarfæra framkvæmir reglulega tilraunir í tanknum. Reyndir sérfræðingar NesNets veita aðstoð við hönnun og samsetningu líkana sem síðan má reyna í sjálfun tanknum.
NesNet býður námsefni í veiðarfæragerð og kennslu hvort heldur er í fjarnámi, í fyrirtækjum og veitir jafnframt almenna ráðgjöf um veiðarfæragerð og notkun.
Í sem stystu máli má segja að í NesNeti hafi safnast upp veruleg þekking og reynsla úr ýmsum áttum á svið veiða, veiðarfæra og þjálfunar – Noregur, Ísland, Holland, Bretland og Spánn eru meðal ríkja sem NesNet sækir þekkingu sína og reynslu. Þessi blanda hefur getið af sér skapandi umhverfi þar sem stöðugt spretta nýjar hugmyndir og bættar leiðir á sviði veiðitækni. Það er NesNet.